Jónas Hallgrímsson bjó til fjöldann allan af orðum sem mörg hver lifa enn góðu lífi. Hann á stóran þátt í að skapa þá hefð að þýða erlend orð, hugtök og heiti á íslensku. Aðrir voru vissulega byrjaðir að íslenska hugtök en Jónas gerði meira en bara að smíða ný orð. Hann hannaði þau, hugaði að lögun þeirra, hljómi, útliti og notagildi og tókst oft svo vel upp að orðin festu rætur í málinu. Mörg þeirra eru svo vel heppnuð að það er eins og þau hafi alltaf verið til, séu partur af frumorðaforða málsins.
Þarna eru orð eins og sporbaugur, þyngdarafl, haförn og léttklæddur. Jónas bjó líka til fjölmörg orð sem var ætlað að draga upp myndir og skapa hughrif. Þar eru orð eins og ylhýr, sjónstjörnur, sviphrein og hjartaþungi. Sum þeirra gengu öruggum skrefum inn í orðaforða málsins en önnur voru aðeins notuð einu sinni.