Hafsteinn Hafliðason er margverðlaunaður fyrir sitt ævistarf en blómarækt, garðyrkja og grasafræði hafa alla tíð verið hans ær og kýr. Hér safnar Hafsteinn saman öllum helstu tegundum pottaplantna sem hann hefur kynnst á heimilum og blómamarkaði síðastliðin fimmtíu ár og gefur ráð um það hvernig best megi sinna þeim. Bókin geymir allt sem blómaræktendur þurfa að vita.
- Hvernig ölum við upp ólíkar plöntur?
- Hversu mikið á að vökva?
- Hvaða birta hentar plöntunni og hvar ætti hún að standa?
- Hvaða mold er best að nota og hvernig er með næringuna?
- Hvernig er ráðlagt að standa að umpottun og fjölgun?
- Hvað heitir blessuð plantan og hvaðan kemur hún?
Öllum þessum spurningum og fjölda annarra er hér svarað og því lýst hvernig við ræktum falleg og heilbrigð stofublóm á heimilum okkar allan ársins hring.
–––
Hafsteinn Hafliðason garðyrkjufræðingur heldur sannarlega lífi í blómum landsmanna. Hann hefur fengist við óteljandi pistlaskrif, unnið að dagskrárgerð um garðyrkju bæði fyrir útvarp og sjónvarp og síðast en ekki síst er hann dáður fyrir að halda úti hinum gríðarstóra hópi á netinu er kallast Stofublóm inniblóm pottablóm. Hópurinn telur hátt á fjórða tug þúsundir fylgjenda og njóta þar allir ráða Hafsteins um umhirðu og rækt plantnanna.