Það er desember í Stokkhólmi og dómsmálaráðherra Svíþjóðar berast hótanir. Á sama tíma finnast mannabein niðri í jarðlestargöngum Stokkhólms. Í ljós kemur að þau eru af valdamiklum manni í viðskiptalífinu. Rannsóknarteymi Minu Dabiri lögreglumanns er laskað eftir hörmulega atburði sumarsins sem leiddu til andláts eins úr hópnum. Sjáandinn Vincent Walder er því fenginn til að aðstoða við rannsókn málsins.
Vincent finnst eins og heimur hans sé smátt og smátt að hrynja. Þegar fleiri bein finnast í lestargöngunum reynir enn og aftur á teymið – hvað gengur á í jarðgöngunum langt undir yfirborði Stokkhólms? Og hver ofsækir ráðherrann?
Æsispennandi atburðarás í þríleik Läckberg & Fexeus.
Camilla Läckberg er einn vinsælasti rithöfundur Evrópu og hafa bækur hennar selst í um 30 milljónum eintaka í tæplega 60 löndum um allan heim.
Henrik Fexeus er margverðlaunaður sjáandi og einn fremsti sérfræðingur heims á sviði líkamstjáningar.
Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði.