Æsispennandi morðgáta
Kjartan Ómarsson virðist ósköp venjulegur maður, vel liðinn og viðkunnanlegur. Einn sólríkan dag fer hann í sund en skilar sér ekki heim aftur. Það kemur öllum í opna skjöldu þegar lík hans finnst í blokkaríbúð sem hann hefur haldið leyndri fyrir konu sinni og vinum. Rannsókn málsins fellur í hendur fyrrverandi knattspyrnu-kempunnar Rúnu og Hönnu starfsfélaga hennar, sem er nýliði í rannsóknarlögreglunni. Fyrr en varir standa þær frammi fyrir óhugnanlegum illverkum sem leiða þær sífellt dýpra inn í fortíð fórnarlamba.