Kiddi mun komast að því að það er ekki eins auðvelt að verða ríkur og frægur og hann heldur.
Hann gerir sér enga grein fyrir því sem í vændum er þegar hann gerist rótari hjá hljómsveitinni Kukkur í bleiu sem Róbbi bróðir hans stjórnar. Líf tónlistarmannsins er víst ekki alltaf dans á rósum.
Getur Kiddi lagt sitt af mörkum til að Kukkur í bleiu verði ódauðleg hljómsveit eða gerir það út af við hann að eyða of miklum tíma með Róbba rokkara?