Ragnar Freyr er mikilsmetinn læknir og vel liðinn meðal skjólstæðinga sinna en brennandi ástríða hans fyrir matargerð hefur vart farið framhjá neinum. Fyrri bækur Læknisins í eldhúsinu slógu rækilega í gegn og eru löngu orðnar ófáanlegar.
Hér býður læknirinn okkur inn í eldhúsið sitt, þar sem öll fjölskyldan hjálpast að við að útbúa ljúffengan hversdagsmat í bland við girnilega veislurétti. „Hver vegur að heiman er vegurinn heim …“ syngur Ragnar og nýtur þess ásamt heimafólki sínu að bera fram sínar bestu krásir.
Ljúffenga réttina fangar Karl Petersson, einn fremsti matarljósmyndari landsins af sinni alkunnu snilld.
Mörg hundruð blaðsíður af litríku lostæti – gjörið þið svo vel!