Jógastund er fyrir alla sem vilja stunda jóga, ekki síst foreldra sem vilja virkja börnin í uppbyggjandi leik. Bókin inniheldur yndislegar jógastöður ásamt sögum, æfingum og leikjum. Æfingarnar og leikirnir eru aðgengileg fyrir alla, þar sem við líkjum í sameiningu eftir dýrum og hlutum í náttúrunni og úr verður hin besta samveru- og gleðistund.
Ys og þys í nútímasamfélagi nær ekki eingöngu til okkar fullorðna fólksins heldur engu síður til barnanna okkar. Að aðstoða börnin við að finna ró og létta á álaginu með jóga er ávísun á núvitund – og dásamlega jógastund!
Jógastund inniheldur yndislegar æfingar og leiki sem hjálpa fjölskyldu og vinum að auka vellíðan og rækta líkama og sál: 50 jógastöður, jógaævintýri, öndunaræfingar, slökunaræfingar og skemmtilegir fjölskylduleikir.