Krydd lífsins er safn tólf smásagna sem allar gerast í nútímanum í höfuðborgum Norðurlanda, allt frá Nuuk til Helsinki. Sögurnar, sem eru skrifaðar af innsæi, varpa ljósi á mannlegt eðli og eru í senn áleitnar, grátbroslegar, fyndnar og harmrænar. Hvað gerir staurblankur listfræðingur sem uppgötvar óvænt tvö verðmæt verk eftir Banksy á vegg bakhúss á Laugavegi? Hvort er verra að eiga mislukkaða tilveru eða öðlast nýtt líf sem fíkill á skandinavískar sjálfshjálparbækur? Geta bókmenntir hugsað? Hvað gerir læknir sem á harma að hefna þegar fjandmaður og örlagavaldur í lífi hans er borinn inn á bráðamóttökuna með öllu ósjálfbjarga?
Í sögunum er sjaldnast allt sem sýnist og hvað eina getur umturnast eða afhjúpast í sviphendingu. Krydd lífsins er lipurlega skrifuð bók og með henni sýnir höfundur hve gott vald hann hefur á smásagnaforminu.
Síðasta skáldsaga Einars Arnar, Ég var nóttin, kom út 2022 og hlaut frábærar viðtökur gagnrýnenda:
„Leiftrandi fyndin, ónotaleg og spennandi skáldsaga.“ / Arnór Hjartarson, Stundin
„Þetta er líklega með fyndnari skáldsögum sem ég hef lesið í seinni tíð og einhvern veginn er nöturlegur húmorinn í henni um leið hlýr … sagan er, með sínum mikla og neyðarlega húmor, mikill skemmtilestur.“ / Ágúst Borgþór, DV
„Ég held ég hafi bara ekki hlegið jafn mikið yfir bók í mörg ár, ef nokkurn tímann.“ / Bjarni M. Bjarnason rithöfundur
„Snilldarlega skrifuð bók. Höfundur gerir mannlýsingum og tíðarandanum skil af mikilli næmni ásamt góðum skammti af dulinni kímni. Því verða sumar annars mjög svo skrautlegar persónur sögunnar afar trúverðugar en jafnframt ógleymanlegar. Þetta er bók sem erfitt er að leggja frá sér.“ / Örnólfur Kristjánsson tónlistarmaður
Ummæli um Tár paradísarfuglsins (1998):
„Margslungin, hrollvekjandi og spennandi lesning.“ / World Literature Today
Ummæli um leikverkið Krákuhöllin (1999):
„Einar Örn hefur skrifað texta sem unun er á að hlýða: Hann er ljóðrænn, heimspekilegur, fyndinn, harmrænn, einlægur, tvíræður og áleitinn. Hann einkennist af myndmáli og táknum og lifir lengi í huga áhorfandans/hlustandans … ég fullyrði að [Krákuhöllin] er með betri íslenskum leikverkum sem skrifuð hafa verið síðastliðin ár. / Soffía Auður Birgisdóttir, Morgunblaðið
Einar Örn Gunnarsson fæddist í Reykjavík árið 1961. Hann hefur unnið að margvíslegum ritstörfum, þar á meðal skrifað leikrit en jafnframt skáldsögurnar Næðingur, Benjamín, Draugasinfónían, Tár paradísarfuglsins og Ég var nóttin. Einar Örn er lögfræðingur með meistarapróf í viðskiptastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík og MA–gráðu frá Sotheby’s Institute of Art í London.