Embla fer í ferðalag á heilsuhæli í afskekktum dal við nyrstu strendur Íslands. Á leið þangað taka málin óvænta stefnu. Í faðmi fjallanna á Fagraskaga sækja á Emblu spurningar sem krefja hana um að leita aftur til upphafsins. Hver er Veran með tvö höfuð? Þarf Melankólía að vakna? Og þá til hvers?
Melankólía vaknar er nútímaævintýri frá einum af okkar áhugaverðustu höfundum.