Heillandi og spennandi örlagasaga
Komið er að tímamótum í lífi Halldóru Hallbjargar Orradóttur. Hún er orðin öldruð og þarf að flytjast á hjúkrunarheimili en tekur lítið annað með sér en dularfullt umslag. Fram undan er nýr kafli en samt rígheldur fortíðin í hana. Myrk leyndarmál sem hlekkjað hafa sál Halldóru frá því að hún var send í sveit sem ung stúlka knýja á og krefjast þess að komast fram í dagsljósið áður en yfir lýkur.