Í fjarlægri framtíð á ísilagðri jörð hafa allar stjörnurnar slokknað nema ein; án hennar væri vetrarmyrkrið algert.
Þegar síðasta stjarnan hverfur verða Dimmbrá og Hnikar viðskila og hrekjast á flótta um heimskautið. Ekki er allt sem sýnist og alls staðar grúfir myrkrið yfir, hyldjúpt og kalt. Hvað varð um stjörnuna, hvernig tengist hún skuggabrúnni — verður hægt að afstýra almyrkva?
Skuggabrúin er fyrsti hluti í væntanlegum þríleik. Sagan er spennuþrungin og heillandi og ætluð jafnt ungmennum sem og fullorðnum: saga um ofdramb og svik, vetrarkulda og hlýju, ljós og myrkur.
– „Skuggabrúin er fagurlega smíðuð bók orða sem flytja okkur í sagnaheim af ljósi og myrkri, þar sem ævintýralegar frásagnir fléttast saman í huga lesandans og speglast í persónum og atburðum úr veruleika samtímans.“ Sjón
– „Frábær furðusaga þar sem bæði söguþráðurinn og frásagnarmátinn seiða lesandann til sín.“ Svanhvít Sif Th. Sigurðardóttir / Bókmenntavefurinn
Sagan hlaut Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta.