Sölvi Daníelsson er á góðri leið með að verða starfsmaður aldarinnar í Bónus. Jafnaldrar hans eru á leið til Asíu eða í heimsreisu. Hann raðar saman orðum á milli vakta en kemur þeim ekki heim og saman. Eitthvað verður maður að gera. Maður verður að hugsa stórt.
Svo hann fer til Akureyrar.
Þetta er saga af ungu skáldi í leit að rödd;
útlaga í leit að bandamönnum;
þjóð í leit að betri tilboðum og
tungumáli sem fæst á 100-kall í Hertex.
Hér er á ferðinni sjálfstætt framhald bókarinnar Sölvasaga unglings sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2015 og hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2016 í flokki ungmennabóka.
„Sölvasaga unglings er ein albesta bók sem skrifuð hefur verið á íslensku.“
Stefán Máni
264 bls.