Hátt í þúsund ár eiga ós við sjó á Íslandi og við þær allar býr saga, rétt eins og við vötnin inn til landsins. Í þessari tveggja binda útgáfu, Íslenskri vatnabók og Stangveiðum á Íslandi, er safnað saman gríðarmiklum fróðleik um vatnamenningu og veiðiskap Íslendinga allt frá landnámi til okkar daga, sagt frá uppgönguaugum og ævintýramönnum, fjarstæðum og fyrirburðum, auk þess sem dregin er upp lýsing á flestöllum vatnasvæðum landsins og frá þeim sagðar sögur, jafnt úr fyrndinni og frá því í sumar, af dularfullum fiskum og dulmögnuðum aflaklóm. Þessi bók er fyrir veiðimenn, um veiðimenn, en líka fyrir þá sem hafa gaman af sögu og náttúru landsins, gömlum ævintýrum og frásögnum sem lýsa svo djúpum gljúfrum að niðir í þeim er hálfrökkur þegar sól skín.
Sölvi Björn Sigurðsson hefur hlotið margskonar viðurkenningar fyrir ritstörf sín og hlaut hann meðal annars Menningarverðlaun DV og tilnefningu til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna fyrir Stangveiðar á Íslandi og Íslenska vatnabók. Þá hafa verk hans verið gefin út víða erlendis og hlotið þar frábærar viðtökur.