Þegar góða veislu gjöra skal er alltaf pláss fyrir brauðtertu. Hún er órjúfanlegur hluti af matarmenningu okkar og hefur verið kölluð þjóðarréttur Íslendinga. Hér má finna fjölda girnilegra brauðtertuuppskrifta, einföld ráð, viðtöl við einlæga aðdáendur brauðtertunnar. Í þessari bók má finna uppskriftir að brauðtertum, hvort sem er fyrir byrjendur eða lengra komna. Hér eru líka einföld ráð sem nýtast öllum til þess að veislan heppnist fullkomnlega.
Allt sem þú vissir ekki að þú þyrftir að vita um brauðtertur – og meira til.