Hún sá manninn í bílflakinu djúpt ofan í gilinu í gegnum einhvers konar hitasóttaróráð. Andlitið sundurtætt og óþekkjanlegt. Glerbrotið eins og byssustingur gegnum hálsinn. Ímyndun og veruleiki urðu eitt og hún lá og bylti sér nótt eftir nótt án þess að geta sofnað.
Hvað gerðist eiginlega þetta örlagaríka síðdegi fyrir fjórum árum? Og hvað er að gerast núna? Það eina sem við vitum fyrir víst er að óhugnanleg röð ofbeldisverka virðist eiga uppruna sinn að rekja til þess sem gerðist við gilið og að það fer illa fyrir þeim sem sogast inn í atburðarásina.
Höfundurinn, hin sænska Carin Gerhardsen, er stærðfræðingur að mennt og nýtir hún skarpa rökhugsun sína til hins ýtrasta í þessum æsispennandi krimma. Söguþráðurinn er úthugsaður, flétturnar óvæntar og persónusköpunin einstaklega lífleg, svo úr verður sálfræðitryllir af bestu gerð.
Sigurður Þór Salvarsson íslenskaði.