Útgáfutilboð og frí heimsending!
Vöffluhúsið í fjöllunum er sænsk metsölubók sem var meðal annars kosin Ljúflestrarbók ársins í Svíþjóð
Sannarlega verðskuldaður sigurvegari sem „Feelgood-bók“ ársins. – Malin Sikström / Malinsblogg.se
Ekta djúpur og skemmtilegur ljúflestur um tilfinningar, ást, vináttu milli kynslóða – og það að finna sig aftur eftir mótbyr. – Goodreads
Umhugsunarverð og tilfinningaþrungin bók sem heillaði mig innilega. – Goodreads
Vöffluhúsið í fjöllunum
Höfundur: Karin Härjegård
3.790 kr.
Grípandi saga um sorg, sjálfstæði og nýja möguleika
Þegar tilveran útheimtir nýtt upphaf
Helena er önnum kafin við að undirbúa afmæliskvöldverð fyrir Martin eiginmann sinn þegar síminn hringir. Það er samstarfskona hennar sem segist hafa átt í ástarsambandi við Martin. Sambandið er búið en ástkonunni finnst að Helena eigi að vita um framhjáhaldið. Heimur Helenu hrynur og til að losna úr brakinu flytur hún burt úr bænum og kemur sér fyrir í fallegu fjallaþorpi. Í fyrstu finnst Helenu lífið dimmt og erfitt, en nýr vinskapur við hina ungu Louise, sem rekur lítið vöffluhús í fjöllunum, dregur hana loks aftur út úr skelinni. Hún byrjar að vinna í vöffluhúsinu og fer upp úr því að hugsa um framtíðina, drauma sína og möguleikann á því að byrja upp á nýtt. Í fjöllunum neyðist Helena líka til að horfast í augu við áföllin sem hún ber með sér frá æskuárunum til þess að geta haldið áfram með lífið.